Rafræn skilríki

Rafræn skilríki geta verið á ýmsu formi. Þau geta verið á debetkortum, snjallkortum, símakortum og einkatölvum svo dæmi séu tekin. Rafræn skilríki má nota bæði til auðkenningar og undirskriftar.

Afhending nýrra debetkorta með rafrænum skilríkjum er með öðrum hætti en afhending hefðbundinna debetkorta vegna rafrænu skilríkjanna. 

Snjallkortin með rafrænum skilríkjum eru plastkort í sömu stærð og debetkort með örgjafa þar sem skilríkin eru vistuð á öruggu svæði.

Atvinnulífið getur bæði notfært sér rafræn skilríki til að sinna erindum sínum við hið opinbera með skilvirkum hætti og bætt og aukið þjónustu við almenna viðskiptavini.



Um rafræn skilríki

Rafræn skilríki bjóða upp á mikið hagræði.

  • Færri notendanöfn og lykilorð !
  • Einfaldara aðgengi !
  • Aukið öryggi í samskiptum !

Meira


Notkun rafrænna skilríkja

Með aukinni dreifingu rafrænna skilríkja mun bætast jafnt og þétt í hóp þeirra aðila sem sjá sér hag í að virkja þau í sína þágu.

Meira





Þetta vefsvæði byggir á Eplica