Skilriki á debetkortum

Samstarfsverkefni fjármálaráðuneytisins og Samtaka fjármálafyrirtækja hefur verið að innleiða rafræn skilríki á debetkortum.

Megin áhersla hefur verið á undirbúning á dreifilyklaskipulagi og skilgreiningu á fjölmörgum þáttum þess, meðal annars á kröfum til vottunarstöðva, samræmdu innihaldi skilríkja, tæknilegri samþættingu, samskiptum milli hagsmunaaðila auk annarra atriða í umhverfi rafrænna skilríkja.

Einnig liggja fyrir drög að stefnumarkandi kröfum til vottunarstöðva sem gefa út rafræn skilríki á Íslandi. Sú kröfulýsing mun fela í sér samkomulag á milli ríkis, banka og sparisjóða um kröfur til framkvæmdar við vottun og útgáfu rafrænna skilríkja sem gera meðal annars kleift að gefa út skilríki fyrir fullgilda rafræna undirskrift í samræmi við lög um rafrænar undirskriftir nr. 28/2001.

Stefnumarkandi kröfur til vottunarstöðva gera ráð fyrir þremur mismunandi öryggisstigum í vottun og fjórum mismunandi tegundum skilríkja; einkaskilríki, starfsskilríki, búnaðarskilríki og skipulagsheildarskilríki.

Þann 8. mars 2007 undirrituðu fjármálaráðherra og Auðkenni hf., sem tók við hlutverki SFF, samstarfssamning um innleiðingu á dreifilyklaskipulagi og almenna notkun rafrænna skilríkja. Samningurinn staðfesti vilja til áframhaldandi samstarfs við undirbúning og innleiðingu dreifilyklaskipulags og almennrar notkunar rafrænna skilríkja á Íslandi. Markmið samstarfsins er að auðvelda, með útbreiðslu rafrænna skilríkja, einstaklingum, stofnunum, fyrirtækjum og öðrum lögaðilum að nýta sér rafræna opinbera þjónustu og möguleika rafrænna samskipta með öruggum hætti.

Á samningstímanum munu báðir aðilar byggja upp rafræna þjónustu fyrir einstaklinga og lögaðila sem nýtir þau skilríki sem gefin verða út á debetkortum og undir milliskilríkjum ríkisins, undir Íslandsrót. Aðilar munu vinna að því að skilríkin verði meginleið þeirra til rafrænnar auðkenningar og undirskrifta og beita sér fyrir því að rafræn skilríki verði nýtt til að auka sjálfvirka miðlun upplýsinga á milli upplýsingakerfa til hagræðingar og bættrar þjónustu.

Samstarfinu er meðal annars ætlað að gefa af sér eftirfarandi afurðir:

  • Samhæft dreifilyklaskipulag með einni vottunarrót fyrir Ísland - Íslandsrót
  • Uppbyggingu á skilvirkri vottunarþjónustu fyrir útgáfu rafrænna skilríkja undir Íslandsrót
  • Endurnýjun debetkorta íslenskra bankastofnana sem innihalda rafræn skilríki til auðkenningar og rafrænna undirskrifta

Þetta vefsvæði byggir á Eplica