Auðkennislykill og rafræn skilríki

Bankar og sparisjóðir hafa skoðað markvisst leiðir til þess að auka öryggi í rafrænum viðskiptum. Fyrsta skrefið í þá átt var að taka í notkun auðkennislykla.

Í meginatriðum er munurinn á auðkennislykli og rafrænum skilríkjum eftirfarandi:


Auðkennislykill
Rafræn skilríki
Er eingöngu notaður við innskráningu í Netbanka
Má nota við innskráningu í ýmsa netþjónustu - lausn sem allir geta nýtt sér
Geymir engar upplýsingar um eiganda sinn
Geyma upplýsingar um eiganda til dæmis kennitölu og nafn
Er lyklakippa
Innbyggð í debetkort
Ekki hægt að nota sem löglega undirskrift
Má nota sem löglega undirskrift
Þarf engan auka tæknibúnað í tölvu notandans
Tölvan þarf að vera búin kortalesara og hugbúnaði sem les skilríkin
Gefur upp mismunandi númer sem tengist notendanafni og lykilorði notandans
Eitt og sama lykilorðið fyrir alla auðkenningu


Þrátt fyrir að rafræn skilríki séu framtíðarlausnin í auðkenningu á Netinu þá mun auðkennislykillinn lifa samhliða fyrst um sinn við innskráningar í netbanka. Á meðan svo er þá er notandanum í sjálfsvald sett hvora lausnina hann kýs að nota.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica