Nýtt debetkort

Debetkort með rafrænum skilríkjum

Debetkort með örgjörvumAfhending nýrra debetkorta með rafrænum skilríkjum er með öðrum hætti en afhending hefðbundinna debetkorta vegna rafrænu skilríkjanna.

Ef þú hefur ekki fengið tilkynningu um nýtt debetkort með rafrænum skilríkjum getur þú sótt um nýtt debetkort hér.

Að hefja notkun rafrænna skilríkja felur í sér þrjú megin skref.

  1. Undirbúningur
  2. Afhending
  3. Uppsetning og notkun

Í fyrsta lagi er að fá tilkynningu um nýtt debetkort þar sem farið er yfir hvað þarf að gera til þess að fá kortið afhent. Síðan er að ná í debetkortið og hafa meðferðis nauðsynleg gögn. Að lokum þar að setja upp lesara og hugbúnað á tölvu til þess að hægt sé að nýta rafræna skilríkið í samskiptum.

1. Undirbúningur

Þegar nýtt debetkort hefur verið framleitt er send tilkynning til korthafa með upplýsingum er varða nýja kortið og rafrænu skilríkin. Áður en debetkortið er sótt er mikilvægt að hafa valið sér PIN númer, kynnt sér áskriftarsamning og náð í PUK númer í netbanka.

Einblöðungur með kynningarefni fyrir nýja notendur á að fylgja tilkynningu um nýtt debetkort með rafrænum skilríkjum.

Áskriftarsamningur

Viðskiptavinur þarf að kynna sér samning sem hann verður að skrifa undir í eigin persónu til að geta fengið kortið afhent.

PUK númer

ÖrgjörviÞví næst þarf viðskiptavinur að fara í vefbanka sinn og ná þar í svokallað PUK númer sem veitir honum aðgang að skilríkjunum á kortinu. Sjá nánar á vefjum banka og sparisjóða hvernig nálgast má PUK númer: Íslandsbanki, Landsbankinn (PDF 524 KB), Arion banki (PDF 1,2 MB).

PIN númer

PIN stendur fyrir Personal Identification Number og er 6 stafa lykilorð (PIN) sem skilríkjahafi velur sjálfur við afhendingu skilríkja. Mikilvægt er að vera búin að velja sér PIN númer áður en skilríki er sótt. Mikilvægt er að velja PIN-númer sem er ekki á einhvern hátt augljóst. Hér má finna gátlista varðandi val á góðu PIN-númeri.

PIN-númerin sem fylgja rafrænum skilríkjum eru tvö:

  1. PIN-númer til auðkenningar (fyrstu 4 tölustafirnir)
  2. PIN-númer til undirskriftar (allir 6 tölustafirnir)

2. Afhending

Lögformleg persónuskilríki eru nauðsynleg við afhendingu!

Að ofangreindum skrefum loknum þá getur viðskiptavinur heimsótt útibú sitt til þess að ná í nýtt debetkort með rafrænum skilríkjum. Til þess að geta fengið kortið afhent þarf hann að hafa eftirfarandi meðferðis:

  1. PUK númerið (sem enginn annar má sjá) fengið frá vefbanka
  2. Gild persónuskilríki með skýrri mynd svo sem vegabréf, ökuskírteini, nafnskírteini eða dvalarleyfisskilríki, önnur skilríki eru ekki tekin gild
  3. Sex tölustafa PIN númer (sem enginn annar má sjá)

Afhending debetkorts með rafrænum skilríkjum

Þegar viðskiptavinur kemur í tiltekið útibú er honum vísað til skráningarfulltrúa sem leiðir hann í gegnum afhendingarferli sem miðar að því að sannarlega réttur aðili fái kortið í hendur en einnig að því að opna kortið og gera það tilbúið til notkunar.

3. Uppsetning og notkun

Til þess að nota rafræna skilríkið þarf að hafa aðgang að tölvu, kortalesara og hugbúnaði fyrir skilríkin.

Kortalesari

Kortalesarar eru innbyggðir í margar nýrri fartölvur en einnig má nálgast kortalesara með svokölluðu USB-tengi hjá bönkum og sparisjóðum. Kortalesarar geta verið af mismunandi gerðum og þurfa rekil (e. driver) frá framleiðendum sínum til að þeir virki.

Hugbúnaður

Til þess að tengja saman kortið og kortalesarann þarf hugbúnað. Hugbúnaðurinn sem boðið er upp á er ókeypis.

Uppsetning á hugbúnaði og kortalesara

  1. Sækja hugbúnaðinn og setja hann upp
  2. Keyra upp hugbúnaðinn
  3. Tengja kortalesarann við tölvuna

Þegar uppsetningu er lokið ætti þetta merki Nexus íkon að sjást í stjórnstiku tölvunnar. Merkið ætti að snúast þegar kortið er sett í kortalesarann. Þegar smellt er á merkið kemur upp gluggi merktur Nexus Personal og í glugganum ætti skilríkið að sjást ef uppsetning hefur heppnast. Í sumum tilvikum gæti þurft að endurræsa tölvuna eftir uppsetningu.

Skilríkið notað í fyrsta sinn

Þegar skilríkið er notað í fyrsta sinn mun tölvan biðja um heimild til þess að setja inn skilríkjakeðju Íslandsrótar (mynd) sem er að finna á debetkortinu. Þessari spurningu skal svara játandi og mun skilríkjakeðjan þá verða uppsett á vélinni.

Prófa skilríkið

Hér er hægt að prófa skilríkið og sjá hvaða upplýsingar það geymir.

Hvar get ég notað skilríkin?

Hægt er að nota skilríkin bæði til auðkenningar og undirritunar. Fyrst um sinn verða skilríkin væntanlega mest notuð við auðkenningu. Hægt er að nota skilríkin til auðkenningar á ýmsum stöðum í dag og eru tenglar á skilríki.is yfir aðila sem nýta rafræn skilríki í samskiptum.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica