Kortalesarar
Til þess að geta notað rafræn skilríki, sem hýst eru á kortum með örgjörva, þarf að hafa kortalesara. Réttur hugbúnaður sér síðan um samskipti tölvunnar við kortalesarann.
Hvar fást svona kortalesarar?
Flest útibú bankanna útvega lesara gegn vægu gjaldi. Í mörgum nýrri fartölvum eru þessir lesarar innbyggðir og einnig eru til sölu í mörgum verslunum lyklaborð með innbyggðum kortalesurum sem er mjög þægileg lausn.
Er flókið að tengja kortalesara við tölvuna?
Nei, þeir eru allir tengdir með USB-snúru við tölvuna. Í langflestum tilfellum finnur stýrikerfið viðeigandi rekla (e. drivers) fyrir kortalesarana án þess að notandinn þurfi að gera neitt. Í einhverjum tilfellum getur þurft að setja rekla handvirkt inn.
Hér eru reklar fyrir allar tegundirnar af kortalesurum sem bankarnir hafa verið að afhenda.
OK - Omnikey
- Rekill fyrir Windows 32 bita stýrikerfi (ZIP skrá 3,8 MB)
- Rekill fyrir Windows 64 bita stýrikerfi (ZIP skrá 4,0 MB)
TODOS
- Argos mini Rekill fyrir Windows stýrikerfi (EXE skrá 3,2 MB)
XIRING - teo
- Rekill fyrir Windows stýrikerfi (Zip skrá 0,5 MB)
GEMALTO - PC USB-TR
- Rekill fyrir Windows 32 bita stýrikerfi (MSI skrá 1,2 MB)
- Rekill fyrir Windows 64 bita stýrikerfi (MSI skrá 1,6 MB)
Kortalesarar hafa verið í stöðugri þróun undanfarin ár og nú er svo komið að flestir lesarar styðjast við sama staðalinn. Þessi staðall kallast PC/SC (Personal Computer / Smart Card). Þetta þýðir að allir lesarar sem styðja PC/SC virka í flestum stýrirkerfum. PC/SC stuðningur er innbyggður í Windows en hægt er að notast við PC/SC lite í Linux og Mac.
PC/SC stuðningur tryggir að lesarinn virki í stýrikerfinu en samt sem áður eru framleiðendur lesarans að dreifa sérstökum reklum (drivers) með þeim. Þeir reklar sem koma frá framleiðandanum bæta oft frammistöðu lesarans.
- Nánar um PC/SC er að finna hér www.pcscworkgroup.com.
Lesarar eru nú flestir USB-tengdir og geta komið með eða án talnaborðs (PIN Pad).
Mörgum nýjum tegundum fartölva fylgir kortalesari. Einnig eru framleidd hefðbundin lyklaborð með kortalesurum.
