Umsókn um skilríki á snjallkortum

Umsóknarferli um rafræn skilríki á snjallkotum er eftirfarandi.

  1. Umsókn er fyllt út á umsóknarvef Auðkennis og send rafrænt til Auðkennis.
  2. Í lok umsóknar prentast út samningur sem forráðamaður skrifar undir og sendir í pósti til Auðkennis.
  3. Forráðamaður og starfsmaður (handhafi skilríkjanna) fá tölvupóst á netföngin sem tilgreind eru í umsókn: Starfsmaður þarf að opna sinn tölvupóst og smella þar á tengilinn STAÐFESTA NETFANG. Forráðamaður þarf að opna sinn tölvupóst og smella þar á tengilinn SAMÞYKKJA UMSÓKN.
  4. Auðkenni samþykkir, hafnar eða óskar frekari sannvottunar á upplýsingum í umsókn.
  5. Ef umsókn er samþykkt er gengið frá greiðslu fyrir kortið til Auðkennis.
  6. Kortið er sent í það bankaútibú sem valið var í umsókninni.
  7. PUK-númer er sent á lögheimili starfsmanns.
  8. Starfsmaður mætir í viðkomandi bankaútbú. Starfsmaður verður að hafa með sér PUK númer, vegabréf eða ökuskírteini með skýrri mynd. Hjá skráningarfulltrúa í bankanum fer fram vottun á persónu, undirritun sérstaks samnings, virkjun á skilríkjum og afhending á korti og lesara.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica