Rafræn skilríki
Rafræn skilríki má nota bæði til auðkenningar og undirskriftar:

Auðkenning
- Færri notendanöfn og lykilorð
Ég vil nota skilríkin mín til þess að nálgast allar mínar upplýsingar á Netinu, ekki fleiri notendanöfn og lykilorð! - Einfaldara aðgengi
Auðvelt er fyrir fólk, fyrirtæki og stofnanir að nýta rafræn skilríki til frekara aðgengis að upplýsingum og þjónustu. - Aukið öryggi í samskiptum
Vafasamir einstaklingar geta ekki villt á sér heimildir, t.d. á spjallsvæðum fyrir börn og unglinga.
Rafræn undirskrift
- Spara sporin, tíma og fjármuni
Handhafi rafræns skilríkis getur skrifað undir skjal eða umsókn þegar honum hentar, heima eða hvar sem er. - Tryggja heilleika gagna
Ef rafrænt undirrituðu skjali er breytt ógildist undirritunin. - Rekjanleiki gagna
Auðvelt er að rekja hver skrifaði undir hvað og hvenær.
