Hvað eru rafræn skilríki?
Rafræn skilríki eru skilríki í rafrænum heimi. Þau geta verið á ólíkum miðlum og notuð í ýmsum tilgangi. Mikilvægt skref í almennri notkun fólks og fyrirtækja á rafrænum skilríkjum á Íslandi er útgáfa rafrænna skilríkja á debetkortum.
Rafræn skilríki sem gefin eru út á debetkortum uppfylla íslenskar og evrópskar lagareglur og eru liður í því að auka öryggi og trúnað í rafrænum samskiptum.
Rafrænu skilríkin byggja á öruggustu tækni sem þekkist í heiminum og miða að því að auka öryggi í rafrænum samskiptum. Með rafrænum skilríkjum er hægt að auðkenna sig og undirrita skjöl rafrænt.
