Spurt og svarað
Hvað eru rafræn skilríki?
- Rafræn skilríki eru skilríki í rafrænum heimi.
- Að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum er líkt og að framvísa vegabréfi á netinu.
Hvað get ég gert með rafrænum skilríkjum?
- Rafræn skilríki er hægt að nota til auðkenningar og undirskriftar.
- Auðkenning með rafrænum skilríkjum kemur í stað notkunar á notendanafni og lykilorði. Sömu skilríki eru notuð til auðkenningar hjá öllum sem bjóða upp á auðkenningu með rafrænum skilríkjum. Þess vegna þarf ekki lengur að muna sérstakt notendanafn og lykilorð fyrir hvern og einn, aðeins eitt fjögurra stafa PIN-númer.
- Rafræn skilríki er hægt að nýta til að undirrita, rafrænt, skjöl sem áður þurfti að skrifa undir á pappír. Til þess að undirrita skjöl þarf að muna sex stafa PIN-númer, undirritunar-PIN.
Hvernig get ég notað skilríki til undirskrifta?
Hægt er að nota skilríkin með ýmsum hugbúnaði s.s. Adobe Acrobat og Microsoft Word.
Hvernig geta þjónustuveitendur nýtt rafræn skilríki?
Á skilriki.is er að finna tækniupplýsingar fyrir aðila sem vilja nýta rafræn skilríki í samskiptum.
Hvað er dreifilyklaskipulag?
Sjá orðið dreifilyklaskipulag í lista yfir hugtök og skammstafanir. Sjá einnig síðuna tækniupplýsingar.
Eru til leiðbeiningar fyrir uppsetningu kerfa við nýtingu rafrænna skilríkja í samskiptum?
Á síðunni leiðbeiningar er að finna leiðbeiningar fyrir aðila sem vilja nýta rafræn skilríki í samskiptum.
Hvað verður með votta, þarf ennþá tvo votta að undirskrift?
Það fer eftir viðkomandi þjónustuveitanda, en í aðalatriðum kemur rafræn undirskrift í stað hefðbundinnar undirskriftar.
Hver er munurinn á rafrænum skilríkjum og auðkennislyklinum?
Muninn má útskýra með þessari töflu:
|
Rafræn skilríki
|
Auðkennislykill
|
|---|---|
|
Má nota við innskráningu í ýmsa netþjónustu - lausn sem allir geta nýtt sér
|
Er eingöngu notaður við innskráningu í Netbanka/ Einkabanka
|
|
Geyma upplýsingar um eiganda til dæmis kennitölu og nafn
|
Geymir engar upplýsingar um eiganda sinn
|
|
Innbyggð í debetkort
|
Er lyklakippa
|
|
Má nota sem löglega undirskrift
|
Ekki hægt að nota sem löglega undirskrift
|
|
Tölvan þarf að vera búin kortalesara og hugbúnaði sem les skilríkin
|
Þarf engan auka tæknibúnað í tölvu notandans
|
|
Eitt og sama lykilorðið fyrir alla auðkenningu
|
Gefur upp mismunandi númer sem tengist notendanafni og lykilorði notandans
|
Hvar fást kortalesarar?
Flest útibú bankanna útvega lesara gegn vægu gjaldi. Í mörgum nýrri fartölvum eru kortalesarar innbyggðir og einnig eru til sölu í mörgum verslunum lyklaborð með innbyggðum kortalesurum sem er mjög þægileg lausn. Sjá nánar um kortalesara.
Er flókið að tengja kortalesara við tölvuna?
Nei, þeir eru allir tengdir með USB-snúru við tölvuna. Í langflestum tilfellum finnur stýrikerfið viðeigandi rekla (e. drivers) fyrir kortalesarana án þess að notandinn þurfi að gera neitt. Í einhverjum tilfellum getur þurft að setja rekla handvirkt inn. Sjá nánar um kortalesara.
Hvar finn ég rekla (e. drivers) fyrir kortalesarann?
Þú færð rekla hjá framleiðanda kortalesarans. Sjá vísanir á nokkra framleiðendur á síðu um kortalesara.
Skilríkin mín virka ekki - hvað geri ég?
Athugaðu eftirfarandi:
- Er kostalesarinn tengdur? Kortalesarinn er annað hvort innbyggur í tölvuna eða að hann er tengdur með USB-snúru við tölvuna.
- Er kortið í lesaranum? Snýr kortið rétt í lesaranum? Örgjörvinn á að ganga inn í lesarann.
- Er rétt kort í lesaranum? Athugið að rafræn skilríki eru aðeins á örgjörvum debetkorta.
- Notar þú rétt PIN-númer? Athugið að ef verið er að auðkenna sig á að nota 4 tölustafa PIN-númer en ef er verið að undirrita skjöl skal nota 6 tölustafa PIN-númer.
- Hefur þú farið inn á skilriki.is og prófað skilríkin? Prófa skilríkið!
- Ef allt ofangreint er fullreynt getur þú hringt í þjónustuver bankans þíns.
Ég finn ekki skilríkin í tölvunni - hvað geri ég?
Athugaðu eftirfarandi:
- Ertu örugglega búinn að setja inn Nexus Personal hugbúnaðinn sem þarf til að kortalesarinn virki og tölvan lesi kortið? Besta leiðin til að athuga það er að finna þetta merki neðst í hægra horni tölvuskjásins
. Ef þú sérð það ekki þarf að setja inn hugbúnaðinn. - Er kort með rafrænum skilríkjum (debetkort með örgjörva) í lesaranum?
- Er lesarinn örugglega tengdur tölvunni? Lýsing hvernig vv. getur sé hvort lesarinn sé tengdur Hefur þú prófað að endurræsa tölvuna Ef allt ofangreint er fullreynt getur þú hringt í þjónustuver bankans þíns.
PIN-númerið virkar ekki / PIN-númerið virðist vera rangt - hvað geri ég?
Athugaðu eftirfarandi:
- Hefur þú breytt PIN-númerinu síðan þú fékkst kortið afhent í bankanum? Ef svo er getur vel verið að þú hafir aðeins breytt auðkenningar-PIN en ekki undirskriftar-PIN. Sjá leiðbeiningar um breytingu PIN-númera.
- Ertu að nota rétt PIN-númer? Athugaðu að auðkenningar-PIN (fjórir tölustafir) og undirritunar-PIN (sex tölustafir) er ekki það sama. Athugið að ef verið er að auðkenna sig á að nota 4 tölustafa PIN-númer en ef er verið að undirrita skjöl skal nota 6 tölustafa PIN-númer.
- Ertu örugglega að nota PIN-númer rafrænu skilríkjanna en ekki PIN-númer greiðslukortsins? Athugaðu að rafrænu skilríkin hafa sérstakt PIN-númer.
- Athugaðu að lyklaborðið þar sem þú valdir PIN-númerið í bankanum snýr öfugt við lyklaborð tölvunnar, á lyklaborðinu í bankanum er 1 efst til vinstri en á lyklaborði tölvunnar er það 7 sem er efst til vinstri.
Ef allt ofangreint er fullreynt getur þú haft samband við þjónustuver bankans þíns.
Skilríkin á kortinu eru óvirk - hvað geri ég?
Hefur þú tilkynnt debetkortið þitt týnt eða stolið? Þá gæti eftirfarandi verið að:
- Þegar debetkort týnist eða er stolið þarf viðskiptavinur að hringja í bankann/kortafyrirtækið og óska eftir að kortinu verði lokað. Þegar korti er lokað eru skilríkin um leið gerð óvirk. Ef debetkortið finnst innan X daga er hægt að fá það endurvirkjað, við þá aðgerð endurvirkjast rafrænu skilríkin ekki heldur þarf að virkja þau sérstaklega.
Viðskiptavinur getur endurvirkjað skilríki með því að mæta í bankann með debetkortið og gild persónuskilríki.
Hvernig tengi ég lesarann?
- Lesarinn er tengdur í USB-tengi tölvunnar, (því sama og t.d. minnislyklar eru tengdir við).
- Lesarinn verður virkur um leið og honum er stungið í samband.
Ég er búin að tengja lesarann en hann virkar ekki - hvað geri ég?
Um leið og lesarinn er tengdur á uppsetningarferli að byrja á vélinni. Þá birtast gluggaskilaboð um að Windows-stýrikerfið leiti eftir réttum reklum (e. driver) fyrir lesarann.
Nexus-hugbúnaðurinn virkar ekki - hvað geri ég?
Ef Nexus hugbúnaðurinn virkar ekki má prófa að fjarlægja hann með því að velja hann úr „Add/Remove Programs“. Endurræsið tölvuna og setjið Nexus hugbúnaðinn síðan upp aftur.
Hvað er örgjörvi?
Örgjörvi er sá hluti tölvuflögunnar sem sér um að vinna úr upplýsingum, framkvæma reikningsaðgerðir og fleira. Til eru mismunandi tegundir af örgjörvum, til dæmis er örgjörvi á nýjum debetkortum sem bera rafræn skilríki og þessi örgjörvi ber ábyrgð á framkvæmd vinnslu með gögn af kortinu.
