Kröfur
Stefnumarkandi kröfur fyrir ISRS-skilríki í rafrænni þjónustu - útgáfa 1.0
Skjalið lýsir kröfum sem vottunarstöðvar þurfa að uppfylla til að gefa út rafræn skilríki í opnu, stöðluðu umhverfi.
Skjalið er að mestu byggt á tækniforskrift frá ETSI sem er í tveimur skjölum; ETSI TS 101 456 og ETSI TS 102 042 og lýsir kröfum fyrir mismunandi öryggisstig, allt frá léttvægum kröfum upp í kröfur til skilríkja fyrir fullgilda undirritun.
